10.05.2010 08:55
Víkingur Ólafsvík
fær varnarmann frá Litháen (Staðfest)
Ejub Purisevic, þjálfari Víkings.
Mynd: Fótbolti.net -
Magnús Már Einarsson
Víkingur Ólafsvík hefur fengið
varnarmanninn Artjom Gonchar til liðs við sig.
Gonchar er frá Litháen en hann verður 26 ára á þessu ári.
Gonchar lék sinn fyrsta leik með Víkingi í gær þegar að liðið
sigraði Völsung 4-2 í úrslitaleik B deildar Lengjubikarsins.
Hann ætti síðan að geta leikið sinn fyrsta deildarlek með Víkingi
þegar liðið mætir KV í fyrstu umferðinni í annarri deild um næstu helgi.