Víkingar frá Ólafsvík
lögðu Létti að velli í fyrstu umferð VISA-bikarsins sem hófst í
gærkveldi. Leikurinn fór fram í Breiðholtinu og skoruðu Snæfellingarnir
fjögur mörk í leiknum en Léttismenn tvö. Skallagrímsmenn mæta liðinu
Afríku í sömu keppni í Akraneshöllinni á laugardag.
Stórleikur er á dagskránni hjá Víkingum nk. sunnudag þegar þeir mæta
Völsungum frá Húsavík í hreinum úrslitaleik b-deildar deildarbikarsins,
svokallaðs Lengjubikars. Leikurinn fer fram á gervigrasi í Boganum á
Akureyri. |