07.05.2010 13:52
Visa bikarinn
Nú
styttist óðum í fyrsta opinbera leik Grundarfjarðarliðsins en á
laugardaginn næstkomandi mun liðið ganga bísperrt í splunkunýjum
búningum inná gervigrasið í Mosfellsbæ til að etja kappi við
Aftureldingu í Visa bikarkeppni KSÍ. Þetta mun verða söguleg stund en
Afturelding leikur í 2 deild eftir að hafa fallið úr þeirri fyrstu í
fyrra. Því verður um erfiðan leik að ræða en Tommi, Jón Frímann og
félagar munu eflaust taka á öllu sem þeir eiga til að gera íbúa
Grundarfjarðar stolta.
Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til
að koma og kíkja á leikinn og hvetja okkur til dáða því ekki veitir
okkur af stuðningi ykkar í sumar.
AFTURELDING - GRUNDARFJÖRÐUR
Varmárvöllur
kl 14:00
laugardaginn 8. maí.
Allir að mæta.