Hver voru markmið ykkar
Snæfellinga fyrir tímabilið?
Framan af
var ekkert komið neitt plan svona sameiginlegt innan liðsins en ekkert
svona sem var eitthvað og við settumst ekkert niður með það. En eftir að
Pálmi Freyr kom aftur eins og Jesú gangandi á vatni eina helgina og
Martins Berkis kom þá var sett takmark á að vinna bara allt sem svona
nokkuð ákveðið takmark svoleiðis.
Hvað
lagðir þú upp með í þínum líkamlega þætti og vinnu sem skilað þessum
árangri þínum í vetur?
Ég setti allt upp á
annað stig og setti miklu meiri kraft í allt eins og margir en kannski
eins og á tímabilinu á undan sem mér fannst vera þungt fyrir mig og
fannst allt fara niður um mörg level, deildin og við svo misstum fjóra
leikmenn og þjálfara og viðurkenni að ég pompaði bara niður og þetta var
líka bara hrunið í þjóðfélaginu. En ég setti mér stærri markmið sumarið
á eftir fyrir þetta tímabil og æfði mikið jafnvel tvisvar á dag, lyfti
miklu betur og ákvað að vera í eins góðu formi og ég mögulega gat fyrir
þetta tímabil.
Var það þá erfitt að þjálfa
sjálfan sig á þar síðasta tímbili?
Það
var bara ómögulegt en ég held að Siggi (Sigurður Þorvaldsson) sé sammála
mér að við vorum ekkert góðir þjálfarar en við björguðum okkur og vorum
kannski ekkert slæmir þannig held ég. En eins og hægt var þá var þetta
ekki gott sérstaklega fyrir menn sem eru að spila c.a 35 mínútur hvor í
leik, þá var vonlaust að gera þetta sæmilega og erfitt að þjálfa sjálfan
sig undir svona kringumstæðum.

Hvaða áhrif hafa tveir Bikarmeistaratitlar
og einn Íslandsmeistaratitill á komandi tíma og hefðir hjá Snæfelli?
Ég
held að það hafi gríðalega góð áhrif að hafa tekið þetta skref. Það er
svo mikilvægt fyrir svona litla klúbba. Það eru margir svona næstum því
að ná þessu á hverju tímabili og eru eins og talað er um sterkir hverju
sinni eins og liðin í öðru sæti og eitthvað neðar en það er bara eitt
lið sem nær að vinna og það hafa bara verið þessi þrjú lið KR, Keflavík
og Njarðvík sem hafa getað það ár eftir ár. Ég held að Snæfell fari
svolítið upp úr þessum litla ungmennafélags klassa og yfir í stærri
klassa. Það verður að einhverju leyti meiri krafa á árangur en verið
hefur og þá til góðs og þá smitar það niður til krakkana í yngri flokkum
sem hafa þá séð sitt lið verða meistarar.
Snæfell
hefur verið svolítið litli bróðir úti á landi en þó verið í toppbaráttu
síðustu ár mun það breytast núna eða verða þeir alltaf litlu
landbyggðarmeistararnir?
Við höfum alltaf
verið litli góði bróðir úti á landi sem allir halda með. Ég vona að
umtalið breytist ekki miðað við það sem maður heyrir hjá öðru fólki sem
segir mikið að fyrst mínir menn eru ekki með þá vona ég nú að þið takið
þetta og þetta hefur oft verið þannig hjá okkur komandi frá litlu
bæjarfélagi. Það á eitthvað eftir að breytast eftir að við unnum en það á
eftir að koma í ljós bara miðað við hvernig menn bera sig. Ef menn eru
með leiðindi og hroka þá breytist margt á móti þeim en við verðum alltaf
litli góði gæinn úti á landi þó eitthvað breytist kannski í umfjöllun
út af því að við erum meistarar.
Einhverjar
breytingar sem þig langar að sjá í íslenskum körfubolta?
Ef
við tölum um reglurnar þá má skella hérna inn 4x12 mínútna leiktíma og 6
villur. Fá fleiri inná í leikinn þar sem slatti af aukamínútum gæfi
meira rúll á fleiri mönnum og gaman fyrir áhorfendur líka, ef þú ert að
meina eitthvað í þá áttina þá væri ég til í það. Umgjörð leikja er á
uppleið og mjög góð miðað við aðrar íþróttir. Sjáðu eins og
stuðningsmenn KR sem byrjuðu á söngli og hoppi sem komu með annað inn í
stúkuna til dæmis sem er mjög gaman af. Ef þetta væri hrein
atvinnumannadeild þá væri umgjörðin kannski öðruvísi en er nú. Deildin
hér á Íslandi er mun sterkari en menn halda og hafa margir erlendir
leikmenn sagt það til dæmis. Þannig að heilt yfir er deildin bara mjög
góð.
Talandi um íslenskan körfubolta, þá
er útrás til Svíþjóðar í kortunum hjá þér!
Ég
er búinn að skrifa undir við Sundsvall Dragons í Svíþjóð þar sem Jakob
Sigurðarson er fyrir og verður næstu leiktíð. Það er nokkuð frágengið og
er tveggja ára samningur með endurskoðunarávæði eftir ár þar sem ég get
farið eitthvað annað í Evrópu en þó ekki til annars sænsks liðs.
Fjölskyldan fer öll með mér og myndi ég ekki fara ef hún færi ekki með,
ég er 27 ára og búinn að fá tilboð af og til en fannst eins og þetta
væri eitthvað sem ég ætti að kíkja á. Það er um að gera að víkka
sjóndeidarhringinn líka og prufa að búa annarstaðar og skoða heiminn ef
maður fær tækifæri til en ég var ekkert að bíða eftir einhverju betra og
svoleiðis og ákváðum við fjölskyldan að slá til og finnst mér maður
eiga að gera þetta ef maður hefur tök á því."
Verður
það þá Snæfell aftur eftir útrásina?
Stykkishólmur
er svo hérna áfram þegar maður kemur aftur þar sem ég á hús hérna og
fjölskyldan hennar Unnar er hérna og vinir. Svo er kannski spurning
hvernig er með nám sem ég hef alltaf ætlað mér að klára og verð kannski
kominn langt þegar ég verð búinn og svo hvar vinirnir verða að spila,
svo margt sem getur komið til.
Hvenær
ferðu út?
Ágúst, september er áætlað að
fara en ég var bara að skrifa undir svo að það á eftir að skoða það
nákvæmlega.
Þú býrð á Silfurgötu en ætlar
þú að beita þér fyrir að það komi Gullgata í Hólminn verðir þú í aðstöðu
til?
Ég hef verið að lofa því undafarna
daga alveg uppí ermina á mér og verð að minnsta kosti að viðra þá
hugmynd ef ég hef tækifæri til en það eru kannski önnur mál sem eru ofar
á lista en af hverju ætti ekki næsta gata í Stykkishólmi að geta heitið
Gullgata?
Síðast þegar leikmaður tók hina
gullnu þrennu sem er bikar, Íslandmeistari og besti leikmaður þá var
árið 1976 og þú ekki fæddur?
Já það er
skemmtilegt að vita en ég hefði haldið að Teitur Örlygsson eða Valur
Ingimundar væru búnir að taka þetta fyrr þar sem þeir voru alltaf
vinnandi og rosalega góðir en þetta er eitthvað sem ég vissi ekki og er
alveg ótrúlegt að vita, það munaði litlu hjá Jóni Arnóri í fyrra þar sem
vantaði bikarinn reyndar eftir tapið gegn Stjörnunni.
Nú
ertu búinn að taka tvo stóra titla í vetur en að það eru tveir á
leiðinni í viðbót í þínu lífi, tvíburar sem koma í heiminn von bráðar?
Jú
það er rétt við erum alveg gríðalega spennt fjölskyldan eins og flestir
væru í þessari aðstöðu og þeir eiga að láta sjá sig eftir svona tvær
vikur og vona bara að allt gangi vel og beðið er með mikill
eftirvæntingu eftir þeim. 2010 stefnir greinilega í að verða alveg
magnað ár.
Við tökum undir það með Hlyni
Bæringssyni að 2010 sé að stefna í magnað ár. Þökkum gott spjall við
Hlyn, sem hefði hæglega með harðfylgi getað orðið góð mastersritgerð,
óskum við honum og stækkandi fjölskyldu hans góðs gengis á nýrri grundu
og verður Karfan.is með puttana á púlsinum sem fyrr þegar dregur til
tíðinda frá Svíþjóð.
Viðtal: Símon B.
Hjaltalín.
Ljósmyndir: Þorsteinn Eyþórsson
