Mestu máli skiptir varðandi áframhaldandi góðan árangur í sumar, að margar vinnufúsar hendur standi við bakið á strákunum og er ég þá að kalla eftir fólki sem er tilbúið til að mæta á heimaleiki og aðstoða við gæslu, selja miða á leikinn, sjá um veitingar og ýmis önnur störf sem þarf að sinna í tengslum við leikina. Sýnum nú strákunum stuðning með því að sjá um störfin utan vallarins, þeir ætla að sjá um það sem fram fer innan vallar. Takmark sumarsins er að vera á meðal efstu liða í deildinni og veita yngri mönnunum verðmæta reynslu, en það hefst ekki bara með mikilli vinnu strákanna því ef umgjörðin er ekki í lagi, er erfitt að skapa stemmningu fyrir því að ná markmiðinu. Margar hendur vinna létt verk og þetta eru aðeins 11 leiki frá því 15. maí til 11. sept. Við skorum nú á sem flesta að hafa samband við Stjána Tótu í síma 893-4042 eða mæta á laugardagsmorgnum í íþróttahúsið og tippa, því hann er þar. Stjáni ætlar að sjá um að raða fólki í embætti og það er draumastaða hans að hafa a.m.k. tvo aðila í hverja stöðu eins og í leikmannahópnum, ef það tekst eru þetta bara 5-6 leikir eða færri á hvern aðila. Það er ekki skilyrði að hafa vit á knattspyrnu til að geta aðstoðað! Að lokum skorum við svo á bæjarbúa að mæta vel á leikina í sumar og sýna stuðning okkar í verki. Ársmiðar verða seldir á fyrstu leikjunum. Mfl. Víkings |