Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

10.03.2010 14:47

Létt hjá SnæGrím á Selfossi


"Lauflétt sigurferð á Selfoss"   

 

Bikarmeistarar Snæfells/Skallagríms fengu loks tækifæri á að spila eftir að Grindvíkingar hættu við að leika gegn liðinu síðastliðinn miðvikudag, en í kvöld heimsóttu strákarnir lið FSu þar sem liðið lék án Sigurðar Þórarinssonar sem var veikur.  Guðni Sumarliðason opnaði stigareikninginn hjá Snæfell/Skallagrím og strákarnir leiddu 8-16 um miðjan fyrsta leikhluta.  Guðni var kominn með 6 stig en Egill Egilsson virkaði sprækur og skoraði 8 stig í fyrsta leikhluta þar sem gestirnir leiddu 14-21.   

 

Í öðrum leikhluta náðu FSu strákarnir að minnka muninn í 21-25 en Snæfell/Skallagrímur settu í lás og skoruðu tólf stig í röð og leiddu í hálfleik 23-37.  Í stöðunni 27-39 héldu FSu strákarnir ekkert í við bikarmeistarana og fljótlega var munurinn kominn í 29-57, staðan eftir þriðja leikhluta 36-63.  Fjórði leikhluti var leikhluti mínútuna fyrir þá sem minna höfðu leikið og nýttu menn tækifærin vel, flottur útisigur á Selfossi 56-72.   

 

Stigaskor Snæfells/Skallagríms: Egill Egilsson 15 stig, Birgir Þór Sverrisson 13, Kristján Pétur Andrésson og Guðni Sumarliðason 10, Trausti Eiríksson 6, Sigursteinn Hálfdánarson og Birgir Pétursson og Þorbergur Helgi Sæþórsson 2.  Pálmi Snær Skjaldarson lék en náði ekki að skora.   

 

Næsti leikur hjá strákunum í drengjaflokki er gegn Stjörnunni þriðjudaginn 16. mars í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi. 

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 527
Gestir í dag: 91
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825810
Samtals gestir: 85935
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:45:23
Flettingar í dag: 527
Gestir í dag: 91
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825810
Samtals gestir: 85935
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:45:23