05.03.2010 11:56
Isom sjóðheitur í Tindastólssigri
Tindastóll
lagði í kvöld bikarmeistara Snæfells í spennandi leik á Króknum þar sem
Cedric Isom fór á þvílíkum kostum með 48 stig. Þegar rúm mínúta var
eftir var staðan 91 - 91, en Stólarnir sem voru komnir í bónus fór þá
ótt og títt á línuna og innsigluðu sigurinn þar án svars frá gestunum.
Lokatölur 99 - 91 í frábærum körfuboltaleik.
.
Stigaskor: Isom 48, Rikki 15, Donatas 15, Helgi Rafn 7, Helgi Freyr 5, Axel 4, Einar Bjarni 2, Svavar 2 og Sigmar 1.
Snæfell: Sean 33, Sigurður 18, Martins 17, Jón Ólafur 13, Emil 6 og Sveinn 3.
Dómarar leiksins voru þeir Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Þór Skarphéðinsson og áttu þeir góðan leik.
Áhorfendur um 200 og fögnuðu vel í leikslok.