|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir3.3.2010Snæfellsstúlkur í úrslitakeppninaSnæfell vann Val og fara í úrslitakeppni í fyrsta sinn.
Kvennalið Snæfells sigraði lið Vals í Iceland express deildinni 58-83 í Vodafonehöllinni í kvöld. Með sigrinum fara Snæfellsstúlkur inn í úrslitakeppnina í fyrsta skipti á meðan það kom í hlut Valsstúlkna að fara niður um deild í ár. KR og Hamar sem eru í 1. og 2. sæti deildarinnar sitja hjá og fara beint í undanúrslit en Snæfell mætir þá 3ja sætinu sem er Keflavík í umspili um undanúrslitasæti. Snæfell varð að vinna leikinn og vona að Haukar ynnu Njarðvík til að allt gengi upp sem það gerði.
![]()
Fyrsti hluti var mjög jafn og endaði 18-15 fyrir Snæfell. Annar hluti var jafn framan af og var staðan 25-25 þegar Valur komst yfir 27-25 en þá setti Snæfell stopp á allt hjá Val og settu 8 stig í röð og leiddu í hálfleik 27-33.
Eftir þennan sprett í lok annars hluta var tóninn settur og Snæfellsstúlkur litu aldrei til baka og leiddu allann leikinn og juku forskotið meira og meira. Staðan eftir 3ja hluta var 44-56 og svo tóku þær fjórða hluta 14-27 og kláruðu leikinn sannfærandi 58-83. ![]()
Sherell Hobbs var stigahæst með 30 stig og 7 stolna bolta. Gunnhildur spilaði einnig vel með 16 stig og setti niður 3 af 4 þristum og var með 24 framlagsstig. Hrafnhildur Sævars átti flottann dag með 12 stig og 7 frákös. Björg Guðrún setti 10 stig sýndi töffaratakta þegar hún kom Snæfelli yfir 27-28 með einum af þremur þristum sem hún setti niður og gaf tóninn fyrir það sem á eftir kom. Helga Hjördís skoraði 6 stig og tók 6 fráköst. Sara Sædal setti 3 stig og tók 7 fráköst. Rósa, Unnur og Hildur voru með 2 stig hver og Rósa tók 5 fráköst og Unnur 4 fráköst. Sara Mjöll skoraði ekki en spilaði í leiknum.
Glæsileg frammistaða hjá stúlkunum sem mæta Keflavík á laugardaginn 6. mars í úrslitakeppninni í Keflavík.
![]()
Af vef Snæfells Símon B. Hjaltalín Mynd: Þorsteinn Eyþórsson
![]() |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 160 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244486 Samtals gestir: 19975 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15 |