Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

27.2.2010

Vinnuþjarkur HSH 2009

Í dag var veitt viðurkenning fyrir Vinnuþjark HSH 2009

Það var einróma ákvörðun stjórnar HSH að veita þeim hjónum

Kristján Ríkharðsson og Þórunn Björg Einarsdóttir

Viðurkenninguna Vinnuþjarkur HSH


Getraunastarfið hefst í ágúst. Fljótlega eru settir af stað tveir getraunaleikir áskorendaleikur og hópleikur. Mætum kl 10.00 á laugardögum í Íþróttahúsið þar sem Stjáni gerir klárt til að menn geti tippað en Tóta fer í eldhúsið og gerir klárt kaffi og meðlæti. Opið er til kl 13.00. Síðan er beðið eftir úrslitum í ensku leikjunum svo að hægt sé að reikna út stig í hópleiknum. Áskorendaleikurinn  gengur út á að bátarnir í Snæfellsbæ keppa við fyrirtæki í landi, sá sem tapar skorar á annan,  ef um bát er að ræða þarf hann að skora á annan bát. Í áskorendaleiknum þarf að svo þegar úrslit eru komin að hringja í menn til að láta vita hver hefur unnið og hver tapað og fá svo næstu áskorun sem þarf að vera kominn í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögum svo að hægt sé að setja upplýsingar um leikinn í bæjarblaðið Jökul. Á hverjum þriðjudegi skrifar Stjáni grein í bæjarblaðið Jökul og segir frá báðum leikjunum og minni á hin ýmsu atriði sem snúa að getraunastarfinu svo sem félagsnúmeri og fl. Nokkuð vel hefur gengið að fá verðlaun í leikina sem eru af ýmsum toga svo sem hótel gisting og fl. Getraunastarfinu líkur um miðjan maí með verðlaunaafhendingu. Sumarstarfið byrjar oftast á því að við hringjum eða sendum tölvupósta í fyrirtæki til að safna auglýsingum á völlinn fyrir sumarið. Þegar nálgast leikdag fer Tóta í búð og verslar inn til að hafa hlaðborð fyrir leikmenn og starfsfólk. Þetta útheimtir mikla vinnu því að hlaðborðið er undirbúið í eldhúsinu heima hjá þeim hjónum. Tveimur tímum fyrir leik er síðan farið með allt sem á að vera á hlaðborðinu í Íþróttahúsið þar sem Tóta sér um að setja kræsingarnar á borð og smyr brauð sem sett er í klefa hjá dómurum leiksins ásamt ýmsu öðru góðgæti. Á meðan Tóta sér um þetta setur Stjáni  búninga fyrir leikmenn í klefann og raða þeim eftir kúnstarinnar reglum, síðan er Stjáni í gæslu á meðan leik stendur. Eftir leik er svo frágangur á öllum sem tekur yfirleitt nálægt tveimur tímum. Þau hjónin hafa leysa öll verkefni sem þau eru beðin um að vinna fyrir Víking í gegnum árin eins vel og hægt er.



Skrifað 27.2.2010 kl. 21:16 af Garðar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244486
Samtals gestir: 19975
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15

Eldra efni