|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
25.02.2010 08:35Víkingur vann ÍH 3-0Sigur gegn ÍH í æfingaleik (3-0)21. febrúar 2010
Víkingar
báru sigurorð af ÍH 3-0 í hörkuleik sem fram fór á
gervigrasvellinum í Laugardalnum í dag. Það voru þeir Þorsteinn Már
Ragnarsson, Almir Cosic og Ingólfur Kristjánsson sem skoruðu mörk
Víkinga í dag. Staðan í hálfleik var 2-0 Víkingum í hag en síðari
hálfleikur var einnig mjög fjörugur og fengu Víkingar fullt af færum
til þess að bæta fleiri mörkum við. Það var þó varamaðurinn og
markvörðurinn Ingólfur Kristjánsson sem innsiglaði sigurinn með góðu
marki eftir að hafa fylgt eftir hornspyrnu okkar manna. Ingólfur var
svo settur í markið 5. mínútum síðar og Einar Hjörleifsson fór í hægri
bakvörð. Hópurinn er sem fyrr frekar þunnur en í dag vantaði; Brynjar Gauta sem var meiddur, Fannar Hilmars sem enn er að jafna sig eftir aðgerð, Aleksandrs Cekulajevs sem væntanlegur er til landsins í næstu viku. Byrjunarlið: Einar í markinu, Bega og Tomasz í miðvörðum, Ólafur Hlynur (V) og Alfreð Hjaltalín (H) í bakvörðunum. Á hægri væng var Andri Hafsteins, Sindri Hrafn á þeim vinstri, Ejub djúpur á miðjunni, Almir Cosic og Dominik fyrir framan hann en Þorsteinn einn á toppnum. Bekkurinn: Ingólfur Kristjánsson, Jón Haukur Hilmarsson og Brynjar Kristmundsson. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 231 Gestir í dag: 59 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827283 Samtals gestir: 86274 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 15:46:38 |