16.02.2010 08:24
Úrslit: Stigaregn á Selfossi
Tveir
leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld þar sem stigunum
rigndi inn á Selfossi. FSu tók á móti Snæfell í Iðu þar sem lokatölur
voru 115-133 Snæfell í vil! Þá átti Grindavík ekki í teljandi vandræðum
með Blika.
Úrslit kvöldsins:
FSu 115-133 Snæfell
Grindavík 94-68 Breiðablik
Richard
Williams fór mikinn í liði FSu í kvöld með 40 stig, 10 fráköst og 8
stoðsendingar. Í liði Snæfells var Sean Burton atkvæðamestur með 25
stig en fjórir leikmenn Snæfells gerðu 22 stig eða meira í kvöld og sex
leikmenn voru með 15 stig eða meira.