Víkingur
samdi í gær við sóknarmanninn Aleksandrs Cekulajevs en hann hefur verið
til reynslu hjá félaginu í u.þ.b. 10 daga. Aleksandrs kemur frá
Lettlandi og spilaði áður með FkJurmala-VV. Aleks sem er 25 ára
gamall hefur undanfarnar tvær helgar spilað æfingaleiki með Víkingum og
skorað í þeim 6 mörk. Þrjú gegn Ými frá Kópavogi og þrjú gegn Ægi frá
Þorlákshöfn í gær sunnudag.
Aleksandrs flaug í morgun til
Lettlands þar sem hann mun dvelja fram að mánaðarmótum eða þar til hann
snýr aftur til Íslands og mun því hefja æfingar að nýju. Hann mun
styrkja framlínu liðsins til muna enda um snöggann og jafnframt klókann
framherja að ræða.
Á myndinni til hliðar má sjá Aleks og Jónas Gest formann knattspyrnudeildar eftir undirskrift samningsins.