|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
15.02.2010 09:46Snæfell/Skallagrímur tapaði fyrir KRDrengjaflokkur tapaði fyrir KR
Það var sveiflukenndur leikur í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi þriðjudaginn 9. febrúar þegar að búninga og þjálfaralausir KR-ingar mættu í heimsókn. Gamla sjarmatröllið Sigurður Hjörleifsson var í heimsókn í Hólminum og stýrði hann liðinu þar sem erlendi þjálfari KR fór alla leið í staðarskála með tveimur leikmönnum! ![]()
Leikurinn byrjaði vel fyrir Snæfell/Skallagrím sem voru með Egil og Kristján í banastuði. Staðan 20-5 þar sem KR-ingar voru afar slakir í flottum búningum. Staðan eftir fyrsta leikhluta 22-11. Snæfell/Skallagrímur náðu að komast í 30-16 en þá kveikti Martin Hermannsson í KR-liðinu sem skoruðu 0-13 og í heildina 4-20. Matthías Orri kom gríðarlega flottur inní leikinn og hittu gestirnir mjög vel. Staðan í hálfleik 34-36 KR í vil. Snæfells/Skallagrímsmenn náðu ekki að sýna styrkleika liðsins þegar á reyndi, liðið missti niður góða forystu mjög fljótlega og leikmenn lítið að gera fyrir hvorn annan.
KR-ingar voru mættir í Hólminn til að leika af fullum krafti, þeir skildu heimamenn eftir í startholunum og voru á örskömmum tíma komnir yfir 20 stig sem þeir héldu út leikhlutann og eftir þrjá leikhluta var staðan 40-62. Guðni Sumarliða smellti tveimur þristum og Egill skoraði, staðan 48-62 eftir tveggja mínútuna leik í fjórða leikhluta. Nær komust Snæfell/Skallagrímur en greinilegt er að liðið æfir ekki saman sem sýndi sig á raunarstundum. KR-liðið nýtti sér það til hins ýtrasta og sóttu góðan sigur 58-75.
Liðin sigruðu því sitt hvorn leikinn á útivelli en toppbaráttann í A-riðli er mjög tvísýn og hver leikur skiptir gríðarlega miklu máli. Lykilleikmenn voru ekki að finna sig og höfðu meiðsli Trausta áhrif á hans leik.
Stigaskor Snæfells/Skallagríms: Kristján Pétur Andrésson 18 stig, Egill Egilsson 12, Guðni Sumarliðason 6, Birgir Þór Sverrisson 5, Þorbergur Helgi Sæþórsson 4, Trausti Eiríksson og Snjólfur Björnsson 3, Elfar Ólafsson og Sigursteinn Hálfdánarson 2 og Sigurður Þórarinsson 1.
Hjá KR var stigaskorið eftirfarandi: Matthías Orri Sigurðarson 16 stig, Illugi Auðunsson og Martin Hermannsson 14, Björn Krisjánsson 12, Egill Vignisson 11, Kristófer Acox 6 og Arnúlfur Hákonarson 2. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 236 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827288 Samtals gestir: 86275 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 16:23:56 |