|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir10.2.2010Ungmennabúðir LaugumUMFÍ rekur ungmennabúðir að Laugum í Sælingsdal fyrir krakka sem eru í 9 bekk, Þessa vikuna eru krakkar úr Snæfellsbæ og úr Þingeyjasýslunni ![]() Að Laugum er aðstaða öll hin glæsilegasta fyrir verkefni sem Ungmenna- og tómstundabúðirnar eru; heimavist sem nú rúmar um 70 nemendur fullbúið mötuneyti, íþróttahús, glæsileg 25 m sundlaug með heitum potti, kennslustofur og rými fyrir afþreyingu og klúbbastarf auk þess að á staðnum er staðsett Byggðasafn Dalamanna. Innangengt er um allt húsnæðið á Laugum þannig að enginn þarf að fara út nema til útivistar og annarra sérstakra viðburða utandyra. Allt umhverfi Lauga er sem sniðið að þörfum búðanna, þar er einnig frábært svæði til útivistar og náttúruskoðunar frá fjöru til fjalls. Staðsetningin er einn af mikilvægum kostum búðanna, sem dæmi eru Laugar í aðeins um 170 km fjarlægð frá Reykjavík þegar Brattabrekka er ekin og tæplega 300 km frá Akureyri ef ekið er um Laxárdal. Tilgátuhús Eiríks rauða er staðsett að Eiríksstöðum í Haukadal sem er í 35 km fjarlægð frá Laugum. Ungmennabúðirnar sjá um flutning þátttakenda í heimsókn þangað. Að Laugum er næði og friður frá ýmsum þeim áreitum sem nemendur verða sífellt fyrir í umhverfi sínu dags daglega og ættu að gefast góð tækifæri til að sinna þeim verkefnum sem að Laugum eru lögð fyrir. ![]() ![]() |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 18 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244344 Samtals gestir: 19962 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:20:11 |