Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

08.02.2010 16:55

Víkingur vann Ými

Sannfærandi sigur á Ými í æfingaleik


Víkingar og Ýmismenn áttust við í æfingarleik sem fram fór í Akraneshöllinni í gær í miklu markaleik þar sem Víkingar höfðu betur. Víkingar heimsóttu Ýmismenn í sumar þegar liðin háðu baráttu um áframhaldandi sæti í bikarkeppni KSÍ þar sem Víkingar mörðu sigur í framlengingu 5-6. Ýmismenn voru ekki langt frá því að tryggja sér sæti í 2. deildinni í sumar en þeim brást bogalistin á lokasprettinum í úrslitakeppni 3. deildar síðasta haust.

Lið Víkings í gær: Ingólfur Kristjánsson(M), Dominik Baida(V) og Ólafur Hlynur Illugason(H) voru bakverðir. Miðverðir voru Tomasz Luba og Besim. Á vængjunum spiluðu Sindri Hrafn Friðþjófsson(V) og Brynjar Kristmundsson(H). Á miðjunni voru Ejub Purisevic, Brynjar Gauti Guðjónsson. Þorsteinn Már Ragnarsson var fyrir framan miðjuna og Aleksandrs Cekulajevs í fremstu víglínu.

Varamannabekkur: Einar Hjörleifsson(inn á 45 mín), Jón Haukur Hilmarsson og Andri Freyr Hafsteinsson

Leikurinn var aðeins 18. mínútna gamall þegar fyrsta markið leit dagsins ljós. Brynjar Gauti gaf þá fyrir markið en knötturinn hafði viðkomu í varnarmanni Ýmis og dómarinn dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. Á punktinn fór Aleksandrs Cukulajevs sem er á reynslu hjá klúbbnum og þrumaði knettinum í slánna og inn. Aðeins 6 mínútum síðar kom Þorsteinn Már Ragnarsson knettinum í netið eftir glæsilega stungusendingu frá Tomasz Luba og staðan því 2-0 eftir 25 mínútna leik. Á 32. mínútu var Þorsteinn svo aftur á ferðinni þegar hann kom Víkingum í 3-0 eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Ýmis. Þannig stóðu leikar í hálfleik og Víkingar með þriggja marka forystu áður en haldið var til búningsherbergja.

Seinni hálfleikur var einungis þriggja mínútna gamall þegar Aleksandrs Cukulajevs skoraði fjórða mark Víkings og jafnframt sitt annað. Aleksandrs hafði þá betur gegn varnarmanni Ýmis eftir langa sendingu frá Tomaszi Luba. Markvörður Ýmis var kominn langt út úr markinu og átti Aleksandrs ekki í vandræðum með afgreiða boltann framhjá honum og í netið. Aleksandrs hafði ekki sagt sitt síðasta því hann átti eftir að bæta fimmta marki Víkings og um leið gulltryggja þrennuna þegar hann vippaði knettinum yfir markvörð Ýmis á 73. mínútu leiksins.

Sannfærandi sigur Víkinga á annars ágætu liði Ýmis og ljóst að þrátt fyrir þunnan hóp þá verða Víkingar sýnd veiði en ekki gefin á komandi tímabili. Senn styttist í að Fannar Hilmarsson verði leikfær en hann mun vonandi hefja æfingar á næstu vikum og um leið styrkja hópinn. Einnig verður forvitnilegt að sjá hvort Aleksandrs Cukulajevs hafi hlotið náð fyrir augum Ejubs en það verður teljast ansi sterkt innkoma að skora þrennu í sínum fyrsta leik.

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 104
Samtals flettingar: 827272
Samtals gestir: 86271
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:33:47
Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 104
Samtals flettingar: 827272
Samtals gestir: 86271
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:33:47