Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

8.2.2010

Snæfell í úrslit Subwaybikarsins

Snæfell í Höllina í úrlitaleik Subwaybikarsins

Snæfell fór til Keflvíkur og leikurinn byrjaði nokkuð jafnt þó heimamenn hefðu yfir framan af. Seinni part fyrsta hluta fóru Snæfell þá að minnka bilið og náði jafnt var eftir hlutann 21-21. Snæfell hafði lent undir 12-6 en breyttu fljótt í 14-16.

 

Snæfell átti flottann annan hluta og spiluðu fantagóða vörn þar sem ekkert gekk hjá Keflavík og skoruðu þeir aðeins 8 stig sem er ólíkt þeim á sínum eigin velli en þeir voru t.a.m. búnir að taka 15 þriggja stiga skot en eitt rataði niður. En hjá Snæfelli var Nonni kominn með 3 þrista ofan í og nýji maðurinn Martins Berkis hafði sett tvo á góðum mómentum og virkaði nokkuð brattur sínar fyrstu mínútur. Hlynur hafði átt teiginn og ógnaði honum engin. Barátatn var góð og vann Snæfell annann hluta 8-25 og höfðu yfir í hálfleik 29-46.

 


 

Nonni var kominn með 20 stig eftir þriðja hluta og hafði sett niður 5 af 6 þristun. Liðin voru jöfn í hlutanum en Keflvíkingar eru eins og allatf tímasprengja og gerðu þeir góð áhlaup þar sem Snæfell missti boltann klaufalega og Hörður Axel var að gera vel fyrir þá í vörninni gegn Sean Burton. En staðan eftir þriðja hluta 48 -63 og Snæfell kom aðeins til baka og hélt forystunni.

 

Páll Fannar og Berkis komu með sinn hvorn þristinn í byrjun fjórða hluta en Martins Berkis setti annann strax á eftir. Snæfell hafði sett 9 stig á móti 2 stigum Keflvíkinga og voru komnir í 22 stiga mun 50-72 og var stigamunurinn sem Keflavík reyndi að saxa niður í þriðja hluta fyrir bí. Allt Snæfells liðið var að spila vel og ef Berkis er einn skotmaðurinn enn ásamt Nonna, Sigga, Sean, Emil og fleirri þá er þeir í góðum gír. Eins og í síðasta leik þá gáfust Keflvíkingar upp síðustu 2 mínúturnar og það núna á sínum eigin heimavelli.

 

Nonni var með 23 stig. Martins Berkis 14 stig. Emil 13 stig. Sean 11 stig. Siggi 10 stig. Hlynur var með massafráköst 23 talsins og átti allt sem í boði var.

 

Eftir fjöldaleikja baráttu gegn sterku liði Keflavíkur þar sem Snæfell hefur yfirleitt verið undir var komið að okkur núna og tveir leikir í röð eru til vitnis um að Snæfell er á uppleið. Verðskuldaður sigur Snæfells í Subwaybikarnum með 26 stigum 64-90 og Snæfell með miðann í Laugardalshöllina 20. febrúar n.k. miðað við dagatal KKÍ.

 

 

Til hamingju Snæfellingar.

 

Símon B Hjaltalín.

Myndir. Þorsteinn Eyþórsson

Skrifað 8.2.2010 kl. 9:24 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 37
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 734
Gestir í gær: 93
Samtals flettingar: 305464
Samtals gestir: 23600
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 01:40:29

Eldra efni