|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
07.02.2010 00:05Snæfell/Skallagrímur tapaðiStrákarnir í drengjaflokki töpuðu fyrir Breiðablik
Strákarnir í drengjaflokki töpuðu 87-76 fyrir Breiðablik eftir að hafa byrjað 30-18 undir í fyrsta leikhluta. Strákarnir voru að tapa sínum öðrum leik á tímabilinu mættu ekki tilbúnir til leiks og lék Arnar Pétursson þá grátt en hann skoraði 36 stig.
Eins og áður segir fóru heimamenn illa með gestina úr Skallagrím/Snæfell, gestirnir leiddu 9-10 en þá settu Blikar í lás og leiddu 30-18. Jafnræði var á milli liðanna í öðrum leikhluta en pressuvörn hjá Blikum var vandamál í fyrsta leikhluta.
Staðan í hálfleik 49-32. Ágætis tilburðir hjá strákunum í þriðja leikhluta reyndust ekki nóg og var vítanýting og skot leikmanna víðs fjarri og hugarfarið greinilega kolrangt fyrir leikinn. Blikar leiddu 67-56 eftir þrjá leikhluta Skallagrímur/Snæfell að sækja á forystu heimamanna. Minnstur varð munurinn fimm stig 70-65 en heimamenn nýttu vítaskotin sín vel og kláruðu góðan sigur. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 222 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827274 Samtals gestir: 86271 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:55:17 |