07.02.2010 00:03
05 02 2010 | 22:38
Berkis í Hólminn
Snæfell
hefur bætt við sig leikmanni fyrir lokasprettinn í Iceland Express
deild karla en sá heitir Martins Berkis og er tveggja metra leikmaður
sem kemur frá liði í Lettlandi. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells
sagði í samtali við Karfan.is að Berkis kæmi inn fyrir Pálma Frey
Sigurgeirsson sem verður ekki meira með Hólmurum þetta tímabilið sökum
meiðsla.
,,Hann
kemur á morgun, laugardag, og við stefnum að því að hafa hann í búning
á sunnudag gegn Keflavík í bikarnum en hann mun ekki gera neina galdra.
Berkis veit lítið um okkur og við takmarkað um hann annað en að hann er
alhliða leikmaður sem spilar stöður 2 og 3 en getur líka spilað í
stöðum 1 og 4," sagði Ingi.
,,Berkis kemur inn
fyrir Pálma sem var tvistur en tók upp boltann áður en Sean Burton kom
til liðs við okkur. Þetta mátti ekki seinna vera því það var bara í
þessari viku sem við fengum staðfest að Pálmi yrði ekki meira með í
vetur. Okkur buðust nokkrir menn og það var samtaða hér í Hólminum um
það að bæta við okkur leikmanni," sagði Ingi en hvort hann henti
Snæfell og boltanum sem leikinn er hérlendis á eftir að koma í ljós.
,,Burton byrjaði ekki beint glæsilega hjá okkur en hefur heldur betur
vaxið hérna," sagði Ingi og eru það orð að sönnu.
Eins
og fyrr segir mun Berkis að öllum líkindum verða í búning þegar
Keflavík tekur á móti Snæfell á sunnudag í undanúrslitum Subwaybikars
karla.