Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

05.02.2010 16:03

Víkingur/Reynir unnu 2deild

Unnu bikarinn

Um helgina fór fram bikarkeppni Blaksambands Íslands í 2. og 3. flokki. Blakdeild HK sá um mótið  og fór það fram í íþróttahúsinu Fagralundi í Kópavogi. Stúlkurnar í Víking/Reyni stóðu sig mjög vel og lentu í 1. sæti í 2. deild þriðja flokks stúlkna. Alls kepptu 6 lið í 2. deild.  Stúlkurnar  unnu alla  fimm leikina og fengu 10 stig. Stigaskor var 262 gegn 211.  Í öðru sæti var Stjarnan og KA í þriðja sæti.Síðan komu Þróttur Neskaupstað , HK og Þróttur Reykjavík.  

Neskaupstaður hefur  oft verið nefndur Mekka blaksins hér á landi en greinilegt er að unglingar ná góðum árangri í greininni víðar á landinu.  Viðar Gylfason þjálfari var ánægður með mótið. Hann sagði að árangur næðist með mikilli æfingu. Sumar súlknanna æfa sex tíma á viku. Nokkrar þeirra æfa með fullorðnum. Í uppgjöfum til að mynda hefðu stúlkurnar náð mikilli leikni og öryggi. Það hefði komið sér vel í mótinu.  Í liðinu voru  þær Katrín Sara, Viktoría, Jóhanna, Sigurbjörg, Tinna, Þórhildur, Valgerður, Brigitta Rún  og Véný. Flestar stúlknanna léku í öllum leikjunum.

H A

 

Frétt úr Jökli 4.2.2010

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 227
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 104
Samtals flettingar: 827279
Samtals gestir: 86273
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 15:16:29
Flettingar í dag: 227
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 104
Samtals flettingar: 827279
Samtals gestir: 86273
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 15:16:29