|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
02.02.2010 16:23Víkingur/Reynir BikarmeistariVíkingur Reynir Bikarmeistari 3 flokki stúlkna
Almennt - laugardagur 30.jan.10 22:28 - Lestrar 102
Um
helgina fór fram bikarmót yngriflokka í annað sinn. Heimaliðið var
sigursælt og hampaði tveimur gullverðlaunum og einu bronsi en keppt var
í 2. og 3. flokki drengja og stúlkna.
Í gærkvöld hófst keppnin með leikjum í öllum flokkum. Alls voru 14 lið mætt til leiks frá 7 félögum. Mótið fór fram í Fagralundi í Kópavogi og var ekki að sjá annað en að allir hefðu skemmt sér vel á vel skipulögðu móti. Í 3. flokki stúlkna varð Víkingur/Reynir bikarmeistari árið 2010. Jason Ívarsson, formaður BLÍ mætti til að afhenda bikarinn í þessum flokki en sigurliðið vann alla sína leiki, þó lentu þær í oddahrinu í tveimur leikjunum sem þær unnu svo. Í öðru sæti var lið Stjörnunnar og í því þriðja endaði KA. Alls voru 6 lið að keppa í 3. flokki stúlkna á þessu bikarmóti. Í 3. flokki drengja varð lið KA bikarmeistari árið 2010. KA liðið vann Stjörnuna í tæplega tveggja tíma leik, 3-2 en Stjarnan endaði í öðru sæti keppninnar. HK og Grundarfjörður voru hin tvö liðin sem tóku þátt í þessum flokki og hafði HK betur gegn Grundfirðingum í lokaleiknum en bæði lið höfðu þá tapað sínum leikjum. HK endaði því í þriðja sæti og fengu bronsverðlaun. Sævar Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BLÍ áfhenti verðlaun í þessum flokki. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 220 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827272 Samtals gestir: 86271 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:33:47 |