Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

2.2.2010

Stúlknaflokkur Snæfell

Stúlknaflokkur tóku annað sætið á fjölliðamóti.

Þriðja umferðin á Íslandsmótinu í stúlknaflokki A-riðli fór fram í Keflavík í Toyotahöll þeirra suðurnesjamanna.  Vel var haldið utan um mótið og stóðust allar tímasetningar sem og dómgæsla sem var í góðu lagi.  Snæfellsstúlkur voru einungis mættar með fimm leikmenn þannig að höfuðverkur þjálfara að velja byrjunarlið og skipta inná var úr sögunni :-)  Á síðasta móti enduðu stelpurnar í þriðja sæti á heimavelli, en þar bættist Ellen Alfa Högnadóttir inní hópinn en því miður leika stelpurnar án Berglindar sem sleit krossbönd.  Í liðið er kominn aftur Sara Mjöll Magnúsardóttir eftir dvöl sína í US and A, nánar tiltekið Los Angeles.

 


Fyrsti leikur stelpnanna var gegn Keflavík b en þær höfðu unnið sér sæti í A-riðli með góðri spilamennsku í B-riðli í annari umferð.  María Ben Jónsdóttir lék með Keflavík b að þessu sinni en hún hefur verið lykilmanneskja í A-liðinu.  Hittni beggja liða var slök í fyrsta leikhluta og stigaskorið lágt.  Snæfellsstúlkur voru að skapa sér mýmörg færi en voru stífar og stressaðar til að byrja með.  Snæfell leiddu 11-7 eftir fyrsta leikhluta þar sem Sara Mjöll hafði skorað 6 stig.  Í öðrum leikhluta kviknaði á Ellen Ölfu, hún raðaði niður þriggja og með henni dansaði Björg Guðrún.  Snæfellsliðið röðuðu niður körfunum á meðan ekkert gekk hjá heimastúlkum.  Snæfell sigruðu leikhlutann 16-3 og leiddu í hálfleik 27-10.  Í þriðja leikhluta byrjuðu heimastúlkur leikinn á þremur þriggja stiga körfum og staðan 27-19.  Snæfellsstúlkur með frábærri vörn svöruðu þeim körfum með 20-2 kafla og leiddu 47-21 eftir þrjá leikhluta.  Í fjórða leikhluta bættu Snæfellsstúlkur enn frekar við og var Ellen sjóðandi heit.  Allar stelpurnar lögðu sig fram og var Sara Mjöll að byrja sterkt í sínum fyrsta stúlknaflokksleik.  Allar nutu þær sín í góðu samspili og samstilltri vörn sem skilaði 51 stigs sigri 74-23.

 


 

Síðari leikur laugardagsins var gegn Keflavík a en athygli þar vakti Ingunn Erla sem er fædd 1995, gríðarlega efnilegur bakvörður þar á ferðinni.  Sara Mjöll opnaði leikinn með góðri körfu en 7 stig í röð frá heimastúlkum eftir mistök í sóknarleik Snæfells kom þeim yfir 7-2.  Stelpurnar bitu frá sér og leiddu eftir fyrsta leikhlutann 7-10 þar sem hittni beggja liða var slök.  Jafnt var á flestum tölum en Snæfell komust yfir 11-15 og leiddu svo í hálfleik 18-20 eftir að liðin höfðu skiptst á að leiða.  Þrjár þriggjastigakörfur í röð hjá Kelfavík komu þeim yfir 30-24 og má segja að þessi smá kafli hafi verið munurinn á liðunum.  Stelpurnar lentu átta stigum undir 36-28 eftir þriðja leikhluta og svo mest tólf í byrjun þess fjórða 40-28.  Ágætis barátta og varnarleikur sást hjá Snæfell en þær höfðu ekki erindi sem erfiði gegn sprækum Keflavíkurstúlkum að þessu sinni.  Lokatölur 51-39.

 


 

Fyrsti leikur sunnudagsins var gegn eina liðinu sem Snæfell höfðu ekki sigrað í vetur, en það voru Haukastúlkur.  Jafnræði var á milli liðanna í upphafi eftir að Snæfell höfðu leitt 2-7 og Haukar jafnað 9-9.  Góður varnarleikur Snæfells og fráköst skiluðu þeim 12-19 forystu eftir fyrsta leikhluta.  Haukar komust yfir í þrígang í öðrum leikhluta en með góðum þrist frá Ellen og góðri körfu frá Hrafnhildi þá leiddu stelpurnar 27-28 í hálfleik.  Í þriðja leikhluta var gríðarlega lítið skorað, Snæfell náðu að halda Haukastúlkum stigalausum í sex mínútur með frábærri vörn og leiddu 27-35, staðan eftir þrjá leikhluta var svo 31-37.  Snæfellsstúlkur sem engan skiptimann höfðu gáfust aldrei upp og voru að spila vel saman í sókninni, þær náðu tíu stiga forystu 34-44 og náðu alltaf að svara áhlaupum Hauka.  Síðustu fjögur stig leiksins voru Hauka og lokatölur 42-49.  Frábær sigur og sá fyrsti á Haukum í vetur.

 


 

Fjórði og síðasti leikurinn var gegn Njarðvíkurstúlkum sem höfðu tapað báðum leikjum sínum (fyrir Keflavík a og Haukum)  Fjórði leikurinn hjá stelpunum á tveimur dögum var farinn að segja til sín.  Frábær byrjun hjá stelpunum þar sem Ellen raðaði niður þristum og leiddu stelpurnar 14-7 eftir fyrsta leikhluta en þær komust í 27-7 þar sem Hrafnhildur var mögnuð í kringum körfuna.  Samspil stelpnanna var gott og alltaf voru þær tilbúnar að finna færi fyrir næstu.  Staðan í hálfleik 31-11.  Njarðvíkurstúlkur byrjuðu síðari hálfleikinn sterkt og náðu muninum niður í 34-18 en þá komur tvær þriggja frá Björgu og Snæfell komust aftur í góða forystu leiddu 44-26.  Fjórði leikhluti var jafn en lítið bensín var eftir hjá Snæfellsstúlkum sem sigldu lygnan sjó, lokatölur 58-43 í öruggum sigri og annað sæti Snæfellsstúlkna.

 


 

Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel á mótinu og var magnað að fylgjast með baráttu þeirra Hrafnhildar og Söru Mjallar undir körfunum.  Björg Guðrún kom boltanum vel upp völlinn oft á tíðum undir mikilli pressu og Ellen var mjög ógnandi fyrir utan.  Hildur Björg skilaði sínu hlutverki vel og saman var gaman að fylgjast með liðinu.  Framundan er undanúrslitaleikur í bikarnum gegn Keflavík og svo fjórða umferðin á Íslandsmótinu.

 


 

 

Stigaskor stelpnanna um helgina

 

>>>> 

Kefv.b

Kefv

Hauk

Njarðv

Samtals

Meðaltal

Hrafnhildur

5

8

15

16

44

11

Hildur

16

0

4

8

28

7

Björg

13

4

6

10

33

8,25

Ellen

21

10

8

9

48

12

Sara

19

17

16

15

67

16,75

Samtals>

74

39

49

58

>>>> 

>>>> 



 


3. febrúar:
- Karfa > Snæfell-Haukar.IE-deild kvenna. Fjárhúsið kl 19:15


4. febrúar:
- Karfa> Snæfell-Keflavík. IE-deild karla. Fjárhúsið. Kl 19:15


6. febrúar:
- Karfa > Minnibolti drengja. Fjölliðamót. Vestmannaeyjar.


7. febrúar:
- Karfa > Keflavík-Snæfell. Subwaybikar. Keflavík kl 15:00



Skrifað 2.2.2010 kl. 16:16 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 70
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 734
Gestir í gær: 93
Samtals flettingar: 305497
Samtals gestir: 23601
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 02:01:40

Eldra efni