|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
01.02.2010 19:34Snæfell safnar gömlum GSMSnæfell safnar GSM símum og fartölvum
Íþróttafélagið Snæfell hyggst hefja nýstárlega fjáröflun sem felst í því að safna gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum í bænum. Þá mun félagið einnig taka á móti stafrænum myndavélum, upptökuvélum og MP3 spilurum. Félagið fær greitt fyrir þau tæki sem safnast en þau eru flutt út í endurnýtingu. Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á tækjunum til viðurkenndra endurvinnslufyrirtækja erlendis sem tryggja endurnýtingu á þeim með ábyrgum hætti. Heilir símar og fartölvur verða nýttir áfram í þróunarlöndum og íhlutir úr ónýtum tækjum verða nýttir í annan búnað. Þá verður spilliefnum úr þeim eytt með löglegum hætti. Félagar í Snæfelli munu á næstu dögum ganga í hús og safna búnaði sem er ekki lengur í notkun og vonast þeir til þess að íbúar í Stykkishólmi taki vel á móti þeim; styrki félagið og stuðli að því að gömul raftæki öðlist framhaldslíf. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 220 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827272 Samtals gestir: 86271 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:33:47 |