|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir28.1.2010Narðvík- Snæfell![]() Litlu munaði í Njarðvík
![]() Stelpurnar stóðu sig vel í kvöld og léku ágætisvarnarleik gegn heimastúlkum. Staðan eftir fyrsta leikhluta 20-19 Staðan eftir annan leikhluta 36-34 Staðan eftir þriðja leikluta 52-46 Lokastaðan 71-64
Smá lýsing á lokakaflanum, Heiða hjá Njarðvík kemur heimastúlkum yfir 61-56 þegar um 2 mín voru eftir. Gunnhildur smellir þrist og Sherell fær tvö vítaskot og jafnar með því að setja bæði 61-61. Heiða Valdimarsdóttir setur þá sveittan þrist og staðan 64-61 og um 26 sek eftir. Sherell setur þrist rúmlega tvo metra fyrir utan og jafnar 64-64, 17 sek eftir. Boltinn berst til Helgu Jónasardóttir og hún skorar. Hún klikkar á vítaskotinu og Snæfell bruna upp, Björg Guðrún misnotar sniðskot og Gunnhildur tekur sóknarfrákastið en eftir mikinn barning nær hún ekki að nýta færið.
Sherell rýkur þá á boltann þar sem Helga Jónasar er að taka niður frákastið, klárlega átt að dæma uppkast og 7 sekúndur eftir en dómarar leiksins voru þeir einu í öllum salnum sem sáu villu og skoruðu Njarðvíkingar síðustu fimm stigin á vítalínunni og sigurinn heimastúlkna.
Stigaskor Snæfells: Sherell Hobbs 33 stig, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14, Hildur Björg Kjartans, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Björg Guðrún Einarsdóttir 4, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 3 og Helga Hjördís Björgvinsdóttir 1.
Stigaskor Njarðvíkur: Shantrell Moss 32 stig, Heiða Valdimarsdóttir 9, Auður Jónsdóttir 8, Helga Jónsdóttir 7, Ólöf Helga Pálsdóttir, Harpa Hallgrímsdóttir og Sigurlaug Guðmundsdóttir 5.
-IÞS- mynd: Þorsteinn Eyþórsson. |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 70 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244396 Samtals gestir: 19973 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13 |