21.01.2010 12:21
Í gær fóru Grundfirðingar suður í Reykjavíkurhrepp að keppa við Fylkir í
2 deild karla í Blaki.
Í stuttu máli sagt þá var sú ferð ekki til frægðar.
Fylkismenn voru ákveðnir í að vinna leikinn og gerðu það nokkuð auðveldlega
3-0 fyrir Fylki. (25-17, 25-16, 25-18)
Í deildinni er staðan sú að Hrunamenn og Fylkir eru jafnir með 12 stig en
Hrunamenn með leik til góða og síðan eru UMFG, Hamar og Þróttur með 6 stig,
Stjarnan 2 með 2 stig og Afturelding með ekkert.
Næsti leikur hjá Grundfirðingum er við Aftureldingu og er hann í Mosfellsbæ,
Sunnudaginn 31 janúar kl. 13.30