|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
20.01.2010 22:12ULM 2010 í BorgarnesiStjórn UMFÍ ákvað á fundi sínum í dag að ULM 2010 yrði haldið í Borgarnesi. HSH óskar nágrönnum sínum til hamingju með það og má búast við fjölmenni af Snæfellsnesi á mótið í Borgarnesi eins og undarfarin ár. Á vef UMFÍ er viðtal við Friðrik Aspelund sambandsstjóra UMSB ,,Við erum afar kát með að við fáum að halda unglingalandsmótið í sumar. Við erum í raun í sjöunda himni með þessa niðurstöðu. Það er mikill áhugi á meðal heimamanna að fá mótið og nú liggur ekkert annað fyrir en að hefja undirbúninginn. Við höfum áður sótt um að halda mótið og því var mjög ánægjulegt að fá mótið núna," sagði Friðrik Aspelund formaður Ungmennasambands Borgarfjarðar eftir að niðurstaða stjórnar UMFÍ lá fyrir í dag hvar 13. Unglingalandsmót UMFÍ yrði haldið í sumar. Friðrik sagði að öll aðstaðan í Borgarnesi væri meira og minna tilbúin og það þyrfti að ráðast í litlar framkvæmdir. Fjárútlát sveitafélagsins verða lítil sagði Friðrik ,,Okkur er ekki til setunnar boðið og nú má segja að við hefjum undirbúning fyrir mótið af fullum krafti. Það eru spennandi tímar fram undan," sagði Friðrik Aspelund.
|
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 478 Gestir í dag: 96 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826977 Samtals gestir: 86207 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:26:46 |