|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir19.1.2010UMFG burstaði Þrótt2 Deild karla í blaki Íþróttahúsið Grundarfirði
UMFG - Þróttur 2 3-0 (25-13) (25-16) (25-19)
Í gærkvöldi tóku Grundfirðingar á móti Þrótturum í 2 deild karla í blaki. Töluverður munur var á liðunum í leiknum og eins og tölurnar segja náðu Þróttara aldrei að veita mótstöðu að ráði Heimamenn voru ákveðnir að vinna leikinn og láta mistök sem voru gerð í fyrri leik liðana ekki trufla sig. Fyrsta hrina var frekar róleg, liðin skiptust á að skora en í stöðunni 5-5 fóru heimamenn að skríða framúr og unnu svo hrinuna nokkuð auðveldlega. Í 2 hrinu náðu heimamenn strax góðir forustu og í undir lok hrinunnar var ungu strákunum skipt inn á og þeim leyft að klára hrinuna, náðu Þróttarar að skora nokkur stig og laga stöðuna en dugði ekki til. Í 2 hrinu voru áhorfendur og trommusveitin kominn af stað og var það aðeins að trufla gestina. En um 90 til 100 manns voru á bekkjunum og er það klárt að stuðningur þeirra hefur mikið að segja fyrir leikinn. Í 3 hrinu voru gestirnir aðeins sprækari og var staðan jöfn upp að 8-8 en þá sigu heimamenn fram úr og með stuðningi áhorfenda kláruðu þeir leikinn. Grundfirðingar eru nú komnir í 3 sæti deildarinnar,Á morgun miðvikudaginn 20 janúar kl. 21 spila svo Fylkir og UMFG í Fylkishöllinni. |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 160 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244486 Samtals gestir: 19975 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15 |