Lífshlaupið hefst miðvikudaginn 3. febrúar og stendur til þriðjudagsins 23. febrúar. Hægt verður að skrá sig inn á vef verkefnisins, lifshlaupid.is frá og með þriðjudeginum 19. janúar. Um
9.300 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði
þátttakendum um 1.600 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til allra
landsmanna og gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í vinnustaðakeppni fyrir 16 ára og eldri, hvatningarleik fyrir grunnskóla og einstaklingskeppni
þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið. Skrá má
alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa
sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.
Við hvetjum alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og
skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á sínum vinnustað.
Nánari upplýsingar má finna hér inn á vef verkefnisins. Samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Lífshlaupsins eru: Heilbrigðisráðuneytið, Mennta-og menningarmálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Skýrr, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.