Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

15.01.2010 08:28

5 staðir sækja um ULM 2010

Fimm sækja um að halda 13. Unglingalandsmót UMFÍ í sumar

Fimm aðilar sækja um að halda 13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands í sumar en umsóknarfrestur þess efnis rann út 10. janúar sl.

Þeir sem sækja um eru Ungmennasamband Borgarfjarðar, UMSB, með móthald í Borgarnesi, Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu, USVS, mótstaður í Vík, Héraðssambandið Skarphéðinn, HSK, Þorlákshöfn sem mótstað, Ungmennafélag Akureyrar, UFA, og Ungmennasamband Eyjafjarðar, UMSE, í sameiningu með mótshald á Akureyri og Héraðssamband Þingeyinga, HSÞ, með móthald á Laugum.

Á stjórnarfundi UMFÍ, sem haldinn verður 20. janúar í Reykjavík, verður ákveðið hvar mótið verður haldið í sumar.

Á þessum stöðum sem sækja um að halda unglingalandsmótið í sumar hafa ýmist Landsmót og Unglingalandsmót verið haldin áður. Fyrsta flokks aðstaða er fyrir á þessum stöðum.

Á stjórnarfundi UMFÍ sem haldinn var 5. desember lá fram bréf frá HSH um að mótið færi fram í Grundarfirði og Stykkishólmi. Stjórn UMFÍ féllst ekki á það og var ákveðið að auglýsa eftir nýjum mótshaldara.

Stjórn UMFÍ leitaði til sambandsaðila og þeim gefinn kostur á að taka að sér framkvæmd Unglingalandsmótsins í sumar.


Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 454
Gestir í dag: 90
Flettingar í gær: 586
Gestir í gær: 147
Samtals flettingar: 826953
Samtals gestir: 86201
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:24:45
Flettingar í dag: 454
Gestir í dag: 90
Flettingar í gær: 586
Gestir í gær: 147
Samtals flettingar: 826953
Samtals gestir: 86201
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:24:45