Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

11.1.2010

Nýr þjálfari hjá Skallagrím

Garðar og Einar Eyjólfsson form. deildarinnar.
Skallagrímur hefur ráðið þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins í knattspyrnu á komandi keppnistímabili. Það er Garðar Jónsson en hann er ekki ókunnur í herbúðum félagsins. Garðar var um árabil lykilmaður í Skallagrímsliðinu ásamt Gunnari bróður sínum. Garðar er næst markahæsti leikmaður í sögu Skallagríms á eftir Valdimar K. Sigurðssyni. Hann hefur mikla reynslu af þjálfun, hefur þjálfað lið Hvatar frá Blönduósi, Sindra frá Hornafirði og Kára af Akranesi með góðum árangri. "Það er Skallagrími sönn ánægja að fá Garðar aftur til félagsins," segir í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeildinni. Skallagrímur leikur sem kunnugt er í þriðju deildinni í knattspyrnunni. Eins og riðlaskiptingin hefur verið undanfarin ár, má meðal annars reikna með að í riðlinum verði Tindastóll á Sauðárkróki sem féll í deildina síðasta haust og Grundfirðingar sem senda lið til keppni næsta sumar eftir langt hlé.

 

Skrifað 11.1.2010 kl. 18:12 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244486
Samtals gestir: 19975
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15

Eldra efni