|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
10.01.2010 21:28Hamar - SnæfellSnæfell vann Hamar
![]() Snæfell mæti Hamri í Hveragerði og var jafnt á með liðunum til í fyrsta leikhluta fram að stöðunni 17-16 fyrir Hmari en þátóku Snæfellingar 10-0 kafla sem skaut þeim inní leikinn. Snæfell var komið í þægilega stöðu eftir þetta og voru að kitla 20 stiga muninn undir lok annars leikhluta. Eftir stolinn bolta og einhverjar vangaveltur hvar hann myndi enda fékk Nonni Mæju hann í hendurnar og smellti einum ísköldum í kælinn c.a 2 metra frá þriggja stiga línu og fór í hálfleikshlé með stöðuna 37-55.
Þriðji hluti var bragðdaufur og ekkert mikið fyrir augað en Snæfell hélt forystunni nokkuð auðveldega. Snæfellingum leiddist þó leikurinn greinilega það mikið að þeir urðu að hleypa Hamri inn til að fá eitthvað fútt í þetta. Hamar lét ekki segja sér það tvisvar og skelltu 15-2 kafla í andlitið á Snæfell og staðan varð svo 78-80 þegar þeir vöknuðu og hysjuðu upp um sig eftir smá flengingu. Snæfell hrökk í smágír og kláraði leikinn 86-98.
Sean Burtonsson var atkvæðamestur með 28 stig og 6 stoðsendingar og 7 þrista í 14 tilraunum. Næstur kom Nonni Mæju með 23 stig og 12 fráköst. Siggi var með 18 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar. Hlynur var með 13 stig og 14 fráköst.
Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 521 Gestir í dag: 88 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825804 Samtals gestir: 85932 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:23:19 |