Það
er alltaf svo gaman að kaupa tæki og græjur að það hálfa væri nóg. Nú
vorum við að kaupa nýtt fjórhjól sem við munum nota til að taka saman
kúlurnar af æfingasvæðinu, í dómgæslu, til verkfæraflutninga og í alla
létta vinnu á vellinum. Tækið kemur götuskráð þannig að hægt er að
nýta það til að ferja bæði tæki og mannskap til Grundarfjarðar ef þess
þarf.