06.01.2010 09:04
BB og synir sigurvegarar Firmakeppni Snæfells 09/10
Hin
árlega firmakeppni Snæfells fór fram 2. jan síðastliðinn og voru 9 lið mætt til
leiks, reynt var að hafa aðeins meiri og skemmtilegri umgjörð þetta árið. Þótti
það takast nokkuð vel og nú ættu fleiri
fyrirtæki að taka sig til og taka þátt á næsta ári. Flott væri ef liðin tækju
Matta og Draugabanana til fyrirmyndar sem og Íslenska Gámafélagið, með því að
mæta allir í eins búningum. Það setti skemmtilegan svip á leik þessara liða.

Nánar á Snæfell.is