Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

5.1.2010

Ferðafélag Íslands fréttir

Eitt fjall á viku - nýársverkefni Ferðafélags Íslands

Ferðafélag Íslands hefur hrundið af stað verkefninu ,,Eitt fjall á viku" en í verkefninu verður gengið á eitt fjall á viku allt árið 2010 og því samtals 52 fjöll á árinu. Meðal annars verður gengið á öll fjöll í nágrenni Reykjavíkur en einnig verður gengið á fjöll víða um land. 

,,Við viljum með þessu hvetja fólk til að hreyfa sig og stunda útiveru og fjallamennsku en fjallgöngur eru ein allra besta likamsrækt sem völ er á," segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ sem verður fararstjóri í öllum ferðunum 52.  Við göngum á bæði létt fjöll en einnig á sum af stærri fjöllum landsins og má nefna sem dæmi að við göngum t.d. á Helgafell, Úlfarsfell og Grímarsfell en einnig á Heklu, Snæfellsjökul og Hvannadalshnúk.

Undirbúningsfundur fyrir verkefnið verður haldinn fimmtudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6 og fyrsta fjallgangan verður sunnudaginn 10. janúar en þá verður gengið á Helgafell.

Á undirbúningsfundinum verður meðal annars farið yfir dagskrá ársins en búið að að velja öll fjöll og ákveða dagssetningar en fjallgöngurnar skiptast niður á miðvikudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga eftir árstíðum.

Hópurinn sem gengur á fjöllin 52 verður aldrei stærri en 52 en ef þátttaka verður mikil þá verða myndaðir fleiri hópar.    

Þrettándagleði í Grafarvogi - Ferðafélag barnanna

Hin árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa verður haldin miðvikudaginn 6. janúar.  Ferðafélag barnanna mætir á svæðið og tekur þátt í dagskránni sem er eftirfarandi:  kl. 17: kakó- og kyndlasala í Hlöðunni, skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög. kl. 17.30 Blysför undirbúin við Hlöðuna; álfakóngur, Grýla, jólasveinar og aðrar kynjaverur sjá um að kveikja í brennunni. kl. 18. Gengið aftur niður að Hlöðunni þar sem verður fjöldasöngur og önnur skemmtilegheit. Fólk er hvatt til að taka með sér restar af flugeldum og skjóta upp á sérmerktu svæði.  Bílastæði við Gylfaflöt og Bæjarflöt.

Nýársglaðningur FÍ til félagsmanna

Ferðafélag Íslands hefur náð hagstæðum samningum við Cintamani og býður nú öllum félagsmönnum sínum glæsilega Cintamani peysu úr techno - strechts með merki FÍ og íslenska fánanum í saumað á kr. 10.000 en söluvirði slíkrar peysu úr verslun er kr. 22.000.  Aðeins er um einn lit að velja, sérstakan Ferðafélagslit, fallega blár. Félagsmenn geta pantað peysu á skrifstofu félagsins fyrir 21. janúar.  Hægt verður að máta stærðir á skrifstofunni, Mörkinni 6 frá og með 7.janúar.

Allir starfsmenn Valitors í Ferðafélag Íslands

Allir starfsmenn Valitors / Visa Island gengu í Ferðafélag Íslands nú fyrir áramótin, alls rúmlega 100 starfsmenn. Um var að ræða nýársgjöf fyrirtækisins til starfsmanna en FÍ hafði sl. haust og nú fyrir jólin kynnt jákvæðan jólapakka þar sem fyrirtækjum og einstaklingum var boðið að ganga í félagið en árgjaldið í FÍ 2010 er kr. 5.800 og er þá árbókin innifalin og aðgangur að öllu starfi félagsins og afsláttur í ferðir og skála og fjölda útivistarverslana. Að sögn forsvarsmanna Valitors þótti þeim þetta tilvalin hugmynd að færa starfsmönnum jákvæðan og uppbyggilegan nýársglaðning og stuðla meðal annars að hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl starfsmanna. Nánar verður sagt frá þessari nýársgjöf Valitors á heimasíðu FÍ á næstunni en Valitor hefur verið samstarfsaðili FÍ undanfarin ár og styrkt meðal annars skiltagerð félagsins á Laugaveginum, Fimmvörðuháls og við Öræfajökul.

Hádegisgöngur FÍ halda áfram

Hádegisgöngur Ferðafélags Íslands sem hófust 1. desember sl. halda nú áfram og eru næstu gönguferðir þriðjudaginn 12. Janúar kl. 12 frá Árbæjarsundlaug og fimmtudaginn 14. Janúar kl. 14 frá baðaðstöðunni í Nauthólsvík.  Um er að ræða léttar og hressandi gönguferðir við allra hæfi og þátttaka ókeypis og allir velkomnir.  Gönguferðirnar taka 60 - 90 mínútur og eru þátttakendur hvattir til að mæta vel búnir.

Skrifað 5.1.2010 kl. 15:23 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 70
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244396
Samtals gestir: 19973
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13

Eldra efni