|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir4.1.2010Nýr þjálfari hjá UMFGMikið að gerastGóðan daginn kæru hálsar og gleðilegt nýtt ár.Það er búið að vera mikið í gangi undanfarna daga. Við vorum að spila í gær á móti Fjölni og tapaðist sá leikur 6-11. Við vorum einfaldlega sprungnir á limminu. Það er nokkuð augljóst að nú þurfum við að taka á því og lýsi ég hér með að undirbúningstímabil okkar er hafið. Á næstu dögum munum við koma með æfingaprógram sem samanstendur af útihlaupum, útiæfingum, inniæfingum og lyftingum til að koma okkur í gírinn fyrir næsta vor. Nýr yfirþjálfari hefur verið kynntur til sögunnar en hann skrifaði loksins undir í gær eftir langar og strangar samningaviðræður. Það tók langan tíma að koma honum í skilning um að við hefðum ekki efni á að kaupa 17 portúgalskar fylgdardömur eins og hann krafðist þannig að hann ákvað að slá til og gera þetta frítt. Yfirþjálfari Meistaraflokks Grundarfjarðar er enginn annar en Tryggvi Hafsteinsson öðru nafni T-Bone sem mun sigla skútunni á næstu leiktíð og jafnvel lengur. Tryggvi mun verða spilandi þjálfari þar sem að hann er líka hrikalega góður útileikmaður eins og hann segir sjálfur frá. Tryggvi er ættaður úr Grundarfirði og sleit fyrstu takkaskónum sínum hérna á malarvellinum í gamla daga. Hann hefur nánast allan sinn meistaraflokksferil spilað með nágrönnunum í Víkingi Ólafsvík en hefur nú ákveðið að söðla um og gerast spilandi þjálfari hjá uppeldisklúbbnum sínum. Velkominn heim Tryggvi. Honum til halds og trausts verða þeir Tómas Freyr Kristjánsson og Jón Frímann Eiríksson en þeir hafa nánast enga reynslu af svona við hliðina á T-Bone. Ég hef fulla trú á að þetta verði magnað. Amk þangað til annað kemur í ljós. Ég treysti því að leikmenn sýni Tryggva þá virðingu sem hann á skilið og fari í einu og öllu eftir fyrirmælum hans. ![]() Fyrir hönd stjórnar. Tommi |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 70 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244396 Samtals gestir: 19973 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13 |