|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
22.12.2009 09:04Fréttir af U17 í blakiU17 ára drengjalandslið Íslands tapaði fyrir Finnlandi í gær. Eins og við var að búast var finnska liðið aðeins of stór biti fyrir strákana, þrátt fyrir að finnski þjálfarinn notaði varaliðið allan leikinn.
Leiknum lauk með sigri Finna, 3-0 (25-7, 25-11 og 25-6) Eins og tölurnar gefa til kynna er töluverður munur á liðunum. Í upphafi annarrar hrinu komst liðið þó í 2-0 eftir góða uppgjöf og blokk frá Herði Páli Magnússyni. Í kjölfarið sýndi liðið góðar syrpur og skoruðu nokkuð góð stig. Sóknaraðgerðir Finna voru þó sterkari og þeir unnu hrinuna auðveldlega. Þriðja hrinan byrjaði afar illa og komust Finnar í 16-1. Undir lokin tóku Andreas og Hörður Páll nokkrar hávarnir og endaði hrinan 25-6 Finnum í vil. Íslenska liðið mætir Englendingum í lokaleiknum sínum en þeir eru í sömu stöðu og Ísland og hafa tapað öllum sínum leikjum. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 233 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827285 Samtals gestir: 86275 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 16:08:04 |