19.12.2009 10:30
Kæri viðtakandi
Óskum ykkur gleðilegra jóla og gott farsælt komandi nýtt ár. Viljum þakka félögunum, ÍSÍ, samstarfsaðilum, styrktaraðilum og iðkendum kærlega fyrir gott og skemmtilegt ár 2009.
Landsliðsfólkinu okkar þökkum við sérstaklega fyrir þátttöku í stórum verkefnum en árangurinn á árinu var hreint frábær, 3 brons hjá A landsliðunum og fyrsti sigur í strandblakleik A landsliðs karla komu á þessu ári svo eitthvað sé nefnt.
Öllum sjálfboðaliðum viljum við einnig þakka en þeir eru íþrótt sinni ævinlega til mikils sóma.
Takk fyrir gott samstarf og gerum enn betur á nýju ári J
Jólakveðja
Sævar Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BLÍ
ps. Skrifstofa BLÍ verður lokuð frá og með 21. desember til og með 4. janúar.