Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

17.12.2009

Frjálsíþróttasambandið með námskeið

FRÍ heldur Kids Athletics námskeið í janúar

FRÍ heldur Kids Athletics námskeið í janúar
Kids Athletics er fyrsta stig af fimm í nýju fræðslukerfi IAAF fyrir þjálfara og FRÍ hefur tekið upp á sína arma og heitir á ensku ?Coaches Education Cerfification System? (CECS). Fyrsta stigið er einkum ætlað þjálfurum barna og unglinga 12 ára og yngri. Næsta stig er ætlað félagsþjálfurum en hin síðari eru sérhæfðari og ætluð þeim sem lengra eru komin.

Fyrsta stigið, sem kallast Kids Athletics eða Krakkafrjálsar, byggir á blöndu íþrótta við leiki og miðar að því að gefa öllum þátttakendum að reyna sig og vera með, samhliða sem þau fá góða þjálfun. Það er m.a. gert með því að kröfur til þátttakenda eru lagaðar að getu hvers og eins. Þátttakendum er skipað í hópa sem keppa sín í milli, ein liðsmenn þurfa líka að leggja sig fram fyrir sitt lið þar sem frammistaða allra telur með. Þetta er því e.k. sambland af einstaklings- og liðakeppni sem gerir þátttöku áhugaverða og skemmtilega fyrir hvern og einn. Samhliða er lögð áhersla á að styrkja félagsleg tengsl á milli barnanna, þar sem börnin sjálf geta tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd keppninnar og æfinga.
 
Námskeiðið verður haldið í tvennu lagi, fyrri hlutinn helgina 8. - 10. janúar nk. og sá síðari 9. - 11. apríl nk.
 
Námskeiðsgjöld verða 25.000- kr. per mann, eða 12.500- kr. fyrir hvora helgi. Þess ber að geta að þátttakendur eiga möguleika á niðurgreiðslu frá viðkomandi stéttarfélagi vegna námskeiðsgjalda.
 
Skráningar á námskeiðið verða í gegnum póstfangið fri@fri.is
  

Skrifað 17.12.2009 kl. 19:39 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 70
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244396
Samtals gestir: 19973
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13

Eldra efni