Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

15.12.2009

KR - Snæfell í kvöld

Tíu-núll fyrir liðið með Pálma
Körfubolti Það verður stórleikur í DHL-Höllinni í Frostaskjóli í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti Snæfellingum og um leið heitustu skyttunni í dag.

Körfubolti Það verður stórleikur í DHL-Höllinni í Frostaskjóli í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti Snæfellingum og um leið heitustu skyttunni í dag.

Leikurinn er fyrsti leikur elleftu umferðar Iceland Express-deildar karla og var flýtt um þrjá daga þar sem KR-liðið er á leiðinni til Kína að mæta Beijing Aoshen í tveimur sýningarleikjum. KR og Snæfell eru í hópi fimm efstu liða deildarinnar sem eru öll með 14 og 16 stig og þessi leikur er einn af lykilleikjum í baráttunni um efstu sætin.

Sean Burton, bandaríski bakvörðurinn í Snæfelli, hefur sett niður 24 af 32 þriggja stiga skotum sínum í síðustu tveimur leikjum Snæfells. Þessi tölfræði ætti að gefa Snæfellingum sjálfstraust fyrir leikinn í kvöld en það er þó önnur tölfræði sem slær þá skotsýningu Sean út. Snæfellingar eru nefnilega komnir með taplausa manninn í sitt lið, bakvörðinn og gamla KR-inginn Pálma Frey Sigurgeirsson.

Pálmi Freyr hefur spilað undanfarin sex tímabil með KR (2005-2009) eða Snæfelli (2004-05 og 2009-) og það lið sem hefur haft hann innanborðs hefur unnið alla tíu deildarleiki liðanna. Umrætt lið með Pálma hefur einnig slegið hitt liðið úr bæði úrslitakeppni (3 sinnum) og bikarkeppni (1 sinni).

Pálmi Freyr hefur verið með 10,3 stig og 3,2 stoðsendingar að meðaltali á 29,0 mínútum í þessum tíu deildarleikjum KR og Snæfells frá árinu 2004. Hann hefur hitt úr 53,1 prósent skota sinna þar af 16 af 34 þriggja stiga skotum sínum.

Í kvöld kemur það í ljós hvort KR-grýla Snæfellinga hafi eitthvað með Pálma að gera. Vinni Snæfellingar í kvöld væri aftur á móti erfitt að þræta fyrir áhrif lukkumannsins Pálma Freys Sigurgeirssonar enda þá búinn að vera í sigurliði í ellefu innbyrðisleikjum félaganna í röð.- óój

Skrifað 15.12.2009 kl. 15:17 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244486
Samtals gestir: 19975
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15

Eldra efni