|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
15.12.2009 08:40Grundarfjörður lagði Hamar.Í gærkveldi tóku Grundfirðingar á móti Hamri, Hveragerði í 2 deild karla í blaki. Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur en með stuðningi áhorfenda og trommusveitarinnar náðu Grundfirðingar að landa naumum heimasigri 3-2. (25-22 20-25 25-22 19-25 18-16) Í fyrstu hrinu var jafnt á öllum tölum upp að 12-12 en þá náðu heimamenn 3 stiga forskoti sem þeir héldu út hrinun. Í 2 hrinu var einnig jafnt framan af en með góðri baráttu náðu Hamarsmenn að sigra þá hrinu. í 3 hrinu var enn allt jafnt en heimamenn voru ekki tilbúnir að gefa leikinn eftir náðu að síga framúr og unnu þá hrinu. Í 4 hrinu var enn á ný allt jafnt framan af en gestirnir voru ákveðnir í að gefa ekkert eftir og þegar staðan var 10 -11 tóku þeir sig saman og sigu framúr og unnu hrinuna. Þá var komið í oddahrinu. Hamarsmenn byrjuðu mjög ákveðnir og komust í 6-9 en þá fóru heimamenn að bíta frá sér og með mikilli baráttu og hörku spennu þá náðu heimamenn að landa sigri með að vinna hrinunna 18-16. Um 90 gestir voru í húsinu og var stuðningur þeirra mikilvægur í þessum baráttu leik. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 521 Gestir í dag: 88 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825804 Samtals gestir: 85932 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:23:19 |