|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir14.12.2009Karfa unglingaflokkurUnglingaflokkur áfram í bikarnum
Snæfell skráði lið í bikarkeppni unglingaflokks en félagið teflir ekki fram liði á Íslandsmótinu í unglingaflokki. Bikardrátturinn var ekki alveg sá besti en það var hið sterka lið Keflavíkur sem Snæfell sóttu heim föstudagskvöldið 11. desember.
Lið Snæfells var skipað eftirfarandi leikmönnum: nr: 6 Guðni Sumarliðason, 7 Lárus Gohar Kazami, 8 Ásmundur Þrastarson, 9 Snjólfur Björnsson, 10 Egill Egilsson, 11 Hlynur Hreinsson, 12 Kristján Pétur Andrésson, 13 Páll Fannar Helgason, 14 Þorbergur Helgi Sæþórsson og 15 Birgir Pétursson. ![]() Lið Keflavíkur var vel skipað með stjörnuleikmanninn Þröst Leó Jóhannsson innanborðs. Heimamenn hófu leikinn mjög vel og skoruðu sex fyrstu stigin 6-0. Guðni Sumarliða opnaði stigareikning Snæfellinga og strákarnir minnkuðu muninn í 10-9. Keflavík nýttu sér hæðarmun sem var á liðunum í upphafi og komust mest yfir 21-9 eftir 11-0 áhlaup. Kristján Pétur smellti þrist og lagaði stöðuna en eftir fyrsta leikhluta voru Keflavík yfir 23-12.
Í öðrum leikhluta skiptu Snæfellingar um vörn og jöfnuðu þeir leikinn 23-23 með frábærum leik. Keflavík komust aftur yfir og voru yfir 28-25 en Kristján Pétur og Páll Fannar komu Snæfell yfir í fyrsta skipti 29-32. Aftur náðu Keflavík að komast yfir 34-32 en Egill Egilsson kom Snæfell yfir 35-37 með þriggjastiga skoti. Það var svo Magni Ómarsson sem jafnði fyrir Keflavík rétt fyrir hálfleik, staðan í hálfleik 37-37.
Allir tíu leikmenn Snæfells komu við sögu í fyrri hálfleik og var það áberandi hvað menn lögðu sig fram. Færsla og áræðni var til staðar hjá öllum en Páll Fannar skoraði níu stig í öðrum leikhluta og var næststigahæstur í hálfleik með 11 stig. Kristján Pétur var með 12 stig og Egill var með sjö. Hjá Keflavík var það Þröstur með níu og Almar Guðbrands með ellefu.
Í síðari hálfleik þéttu Snæfellingar enn frekar varnarleikinn hjá sér og eftir að Almar hafði skorað fyrstu körfu síðari hálfleiks kom 2-16 kafli og forysta okkar manna 41-53. Frábær leikhluti þar sem Lárus Kazami skoraði fimm stig á skömmum tíma og Hlynur Hreinsson var að mata félaga sína. Páll Fannar og Kristján Pétur voru áberandi í stigaskorinu en þeir skoruðu körfur í öllum regnboganslitum. Staðan eftir þrjá leikhluta var 50-61.
Keflvíkingar byrjuðu fjórða leikhluta betur og minnkuðu muninn í 58-63. Páll Fannar fór fyrir sóknarleik Snæfellinga og setti erfið og mikilvæg skot niður, Snæfell komust yfir 60-74 og 61-80. Úrslitin ráðin lokatölur 67-80. Strákarnir eru því komnir áfram í 8-liða úrslit bikarkeppni Unglingaflokks.
Stigaskor Snæfells: Páll Fannar Helgason 28 stig, Kristján Pétur Andrésson 21, Egill Egilsson 10, Guðni Sumarliðason og Hlynur Hreinsson 7, Lárus Gohar Kazami 5, Þorbergur Sæþórsson 2. Aðrir náðu ekki að skora en léku vel einsog liðið í heild. Varnarleikurinn og fráköstin voru til staðar og erfitt að taka einhverja út í þeim efnum. Sigurinn var liðsheildarinnar. -Ingi Þór- ![]() ![]() |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 160 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244486 Samtals gestir: 19975 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15 |