|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir11.12.2009Fréttir úr minniboltanumDrengirnir úr Mini-boltanum.
![]() Drengirnir úr Mini-boltanum eru búnir að fara á 2 mót þar sem af er vetri, og er
ekki seinna vænna en að rita fáein orð um árangur þeirra. ![]() Seinna mótið fór fram á Akureyri og var fyrsti leikurinn gegn heimamönnum. Eftir stórsigur á þeim í Njarðvik voru strákarnir fullmikið að vanmeta getu Þórsara og var leikurinn nánast jafn allan tímann, strákarnir náðu þó sigri og voru menn sáttir við það,aldrei leiðinlegt að vinna. Lokatölur voru 33-29 Stigaskor: Jón Páll 12, Jakob 8, Almar 7, Finnbogi 3, Elías 3 2 leikir voru á sunnudeginum og aftur mættum við ÍR-ingum með Hákon Hjálmarsson í fararbroddi, en hann er sonur Hjálmars Sigurþórssonar Hólmara. Hálfi hólmarinn komst lítið áleiðis gegn frábærri vörn Snæfells þar sem Finnbogi Leifsson fór á kostum, stal boltum og kastaði sér í gólfið um allan völl, þjálfaranum til mikillar ánægju. Orð eins og frábært, snilld og glæsibær var varpað inn á völlinn. Jón Páll Gunnarsson og Elías Björnsson áttu mjög góðan leik, Davíð Karlsson skoraði svo 2 glæsilegar körfur í lok leiks. Lokatölur 58-16 Stigaskor: Jón Páll 18, Elías 10, Almar 8, Jakob 6, Finnbogi 6, Hermann 6, Davíð 4, Seinasti leikur mótsins var hreinn úrslitaleikur um hvaða lið myndi fara upp í C-riðil. Strákarnir byrjuðu gríðarlega sterkt og unnu fyrsta riðil 10-0. Njarðvíkingar bitu aðeins frá sér en aldrei of mikið og voru Snæfellingar með forystu allan leikinn. Jakob Ingason spilaði leikstjórnanda stöðuna mjög vel og skoraði grimmt í byrjun auk þess að finna samherja sína. Hermann Dagnýjar barðist vel, stal mörgum boltum og Jón Páll Gunnarsson spilaði líka mjög vel, eins og hann gerði allt mótið. Lokatölur 37-30 Jón Páll 16, Jakob 8, Hermann 5, Almar 4, Elías 2, Finnbogi 2. -Nonni Mæju- ![]() |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 18 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244344 Samtals gestir: 19962 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:20:11 |