08.12.2009 13:04
Leiklistarnámskeið í Snæfellsbæ
Kári
Viðarsson verður með skemmtilegt leiklistarnámskeið fyrir
leiklistarþyrsta íbúa Snæfellsbæjar. Það verður haldið dagana 7. - 12
desember n.k. milli kl. 20-22:30 í Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ólafsvík.
Námskeiðið verður einskonar blanda af leikjanámskeiði fyrir fullorðna
og leiklistarnámskeiði. Er það opið öllum sem vilja, hvort sem þeir
hafa tekið þátt í leiklistarstarfi áður eða ekki. Á námskeiðinu verður
megináherslan lögð á leiktækni, persónusköpun og spunavinnu.
Aldurstakmark er 16. ára og þátttökugjaldið er 4.000 kr. Eldri borgarar
og meðlimir í Leikfélögum Ólafsvíkur og Hellissands: 3000 kr.
Lágmarksfjöldi þáttakenda er 12.
Skráning:
E-mail : karividars@gmail.com eða í síma 4366747