|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
07.12.2009 17:21ULM 2010 ekki í GrundarfirðiUnglingalandsmót UMFÍ verður ekki haldið í Grundarfirði 2010![]() Stjórn Ungmennafélags Íslands ákvað á fundi sínum laugardaginn 5. desember sl. að auglýsa á ný eftir mótshaldara fyrir Unglingalandsmótið 2010. HSH hafði tekið að sér að halda mótið árið 2009 en því var síðan frestað um eitt ár til 2010 og haldið á Sauðárkróki á þessu ári. Eftir að bæjarráð Grundarfjarðarbæjar ákvað að halda ekki áfram framkvæmdum við lagningu gerviefnis á hlaupa-, stökk- og kastbrautir íþróttavallarins á næsta vori, var staðan endurmetin. Stjórn HSH bauð stjórn UMFÍ að mótið yrði að hluta haldið í Stykkishólmi og að hluta í Grundarfirði, en á það vildi sjtórn UMFÍ ekki fallast. Það eru auðvitað viss vonbrigði að mótið skuli ekki verða haldið í Grundarfirði, en það var talið ófært að halda framkvæmdum áfram við þær efnahagslegu aðstæður sem nú eru. Grundarfjarðarbær og Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) áttu upphaflega að hýsa mótið 2009 en fengu frest til 2010 vegna efnahagskreppunnar. Grundarfjarðarbær er ekki tilbúinn til að standa undir þeim kröfum UMFÍ sem gerðar eru til mótsins og því er auglýst eftir mótshaldara 2010 Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 231 Gestir í dag: 59 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827283 Samtals gestir: 86274 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 15:46:38 |