Víkingur
sigraði í dag sameiginlegt lið Aftureldingar og Hvíta Riddarans í
Íslandsmeistaramóti Futsal í sannkölluðum markaleik. Í hálfleik var
staðan 1-3 Víkingum í vil en heimamenn komu sterkir til baka í síðari
hálfleik en Víkingar höfðu að lokum sigur með 9 mörkum gegn 8.
Mörk
Víkinga skoruðu, Bega(2), Andri Freyr, Brynjar Gauti, Predrak og
Þorsteinn sem var með fjögur stykki og þar af tvö úr vítaspyrnum.
Víkingar tróna á toppi riðilsins með fullt hús stiga og standa því vel
að vígi með 9 stig. 
| Lið | Mörk | ||
| 1. | Víkingur Ó. | 24-9 | 9 |
| 2. | Grundarfjörður | 18-17 | 3 |
| 3. | Fjölnir | 6-5 | 3 |
| 4. | Afturelding/Hvíti | 9-26 | 0 |
