Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

02.12.2009 14:45

Bón og þrif hjá Snæfell

Bón og þrif Snæfells endurtekin 12.desember

Leikmenn og meistaraflokka Snæfells í körfunni stóðu í ströngu á laugardaginn við þrif og bón á bílum bæjarbúa og höfðu ekki undan þrátt fyrir að vera með öll þrjú rýmin undir hjá Dekk og Smur og Áhaldahúsi bæjarins.  Hægt var að fá þvott, bón og alþrif og þegar kíkt var við á Nesveginum voru bílar á öllum stöðvum og leikmenn og stjórnarmenn að taka þá í gegn.  Bíll framkvæmdastjóra Héraðsmeistaranna vakti sérstaka athygli því það kom í ljós við þvottinn að bíllinn er í raun grænn en ekki brúnn.  Þegar allir voru búnir að ljúka sinni vakt og þrifum þar með lokið í þetta skiptið var búið að taka 27 bíla í gegn.  En þar sem enn var eftirspurn eftir þrifum og bóni á bílum þá ætla meistaraflokkarnir að bjóða aftur upp á bílaþrifin laugardaginn 12.desember og ná þá að taka þá sem urðu útundan núna og einnig þá sem ekki voru heima á laugardaginn og gátu því ekki nýtt sér tilboðin.  Þetta var í sjálfsögðu allt gert til fjáröflunar meistaraflokkanna og tókst vel sem slíkt en svona hópvinna er ekki síður til að efla móralinn og þjappa hópunum saman um leið og hún eykur tengslin við íbúa og stuðningsfólk sem fær möguleika á að styrkja starfið og fá um leið eitthvað í staðinn.

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 233
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 104
Samtals flettingar: 827285
Samtals gestir: 86275
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 16:08:04
Flettingar í dag: 233
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 104
Samtals flettingar: 827285
Samtals gestir: 86275
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 16:08:04