|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
30.11.2009 12:24Snæfell tapaði í framlengdum leikSnæfell tapaði með einu eftir framlengingu
![]() Snæfell fór suður með sjó og tóku Grindvíkingar á móti þeim. Þorleifur Ólafsson var veikur hjá Grindavík en Snæfellingar söknuðu Pálma Freys sem á við bakmeiðsli að stríða
Í hálfleik staðan 44-47 fyrir Snæfell.
![]() Hittni Snæfellinga var slök í upphafi fjórða leikhluta á meðan Grindavík voru á setja niður góðar stórar körfur. Páll Axel fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu og setti Hlynur bæði niður og staðan var 83-79 fyrir heimamenn í Grindavík en þeir höfðu haft þægilega forystu sem Snæfell saxaði aðeins á en staðan var 80-71 fyrir Grindavík rétt áður en þeir slökuðu á varnarleiknum og svo voru Arnar og Flake komnir með 5 villur og Ómar 4 villur. Hlynur jafnaði 85-85 fyrir Snæfell þegar 30 sek voru eftir og leikhlé var tekið. Ekki dugði þriggja stiga skot Páls Axels og áttu Snæfellingar frákastið en Sean Burton klikkaði einnig á sínu skoti og Sveinn Arnar líka undir lok hlutans og framlenging var staðreynd og staðan 85-85.
![]()
Hlynur skaut Snæfelli strax í 85-88 og Ómar svaraði í kjölfarið og einnig Brenton. Ólafur setti svo góðann þrist fyrir Grindavík oh komust þeir í 92-88. Sean Burton svaraði svo með tveimur þristum og staðan varð svo 92-94 lengi. En undir lok framlengingar setti Brynjar niður þrist sem kom þeim í 95-94 og ein sekúnda lifði á klukkunni þegar Ingi Þór tók leikhlé. Hlynur Bærings átti síðasta orðið í leiknum og klikkaði skot hans fyrir Snæfell sem beið ósigur í Grindavík í leik jafnra liða 95-94.
Hjá Grindavík var breiddin meiri en Páll Axel fremstur þar með 21 stig. Ómar var með 15 stig og 8 fráköst. Ólafur Ólafs 14 stig. Darrel Flake 13 stig. Brenton 10 stig. Arnar og Brynjar 9 stig hvor en Arnar tók líka 8 fráköst og var með 7 stoðs. Hjá Snæfelli var Sigurður með 24 stig, öll í fyrri hálfleik, og 12 fráköst. Hlynur setti 23 stig og 13 fráköst. Sean Burton kom til í seinni hlutanum og setti 18 stig. Nonni Mæju 15 stig og 8 fráköst. Emil Þór 12 stig. Skrifað af Garðar |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 521 Gestir í dag: 88 Flettingar í gær: 632 Gestir í gær: 101 Samtals flettingar: 825804 Samtals gestir: 85932 Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:23:19 |