Á blakmóti sem nýlega var haldið á Neskaupstað stóðu ungmenni úr Snæfellsbæ sig afar vel. Stúlknaliðið héðan lenti í 3. sæti. Þær Jóhanna Jóhannesdóttir og Katrín Sara Reyes voru valdar í undirbúningslið U-17 landsliðsins. Hilmar Leó Antonsson var einnig valinn í undirbúningsliðið en hann sýndi ágætan leik með KA. Jóhann Eiríksson sem stundar nám á Akureyri er í landsliðinu.
Viðar Gylfason þjálfarier ánægður með árangurinn. Æfingar undanfarin 5 eða 6 ár skila árangri hjá þessum hópi sem er nú valinn í undirbúningslandsliðið.Í undirbúningshópnum eru 16 drengir og 16 stúlkur.24 keppendur fara á Norðurlandamótið sem haldið verður í Danmörku 20. til 22. desember næstkomandi. Viðar segir að fjárhagur Blaksambandsins sé bágborinn og keppendur verði að bera ferða- og æfingarkostnaðsjálfir. Við vonum að fyrirtæki og stofnanir styðji ungmennin til keppnisfararinnar.