24.11.2009 12:13
HSH í samstarfi við UMFG bíður upp á fyrirlestur með Jóhann Inga Gunnarssyni, íþróttasálfræðing í Grundarfirði, fimmtudaginn 26 nóvember.
Fyrirlesturinn verður í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og hefst hann kl. 17.00
Jóhann mun vera með fyrirlestur m.a. um hegðun ungs fólks í íþróttum, t.d. efla sjálfstraust, árangurssinnað hugarfar og hvatningu alla leið.
Fyrirlesturinn er ætlaður þjálfurum, leiðbeinendum og forsvarsmönnum aðildarfélaga HSH og eru þeir hvattir til að taka frá tíma og sækja fyrirlesturinn sem er aðildarfélögum að kostnaðarlausu.
Þeir sem hafa áhuga að sækja fyrirlesturinn eru beðnir að tilkynna þátttöku á netfangið
hsh@hsh.is