Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

21.11.2009 16:06

Snæfell/Skallagrímur

Öruggur sigur í Grindavík

Strákarnir í Snæfell/Skallagrím halda áfram sigurgöngu sinni og eru ósigraðir í A-riðli.  Á þriðjudagskvöldið sigruðu þeir Grindavík á útivelli 66-104 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 49-67.  Stigahæstir voru Kristján Pétur Andrésson með 26 stig og Egill Egilsson 24.

 

Leikurinn hófst vel fyrir Snæfell/Skallagrím og leiddu strákarnir 4-14 en staðan eftir fyrsta leikhluta var 8-24 þar sem Kristján Pétur hafði skorað tíu stig og Egill Egils 8.  Guðni Sumarliðason hóf anna leikhluta sterkt og skoraði sex af tíu stigum sínum.  Eftir að staðan var 15-32, kom bakslag og heimamenn í Grindavík skoruðu 10 stig í röð og breyttu stöðunni í 25-32.  Minnst minnkuðu Grindjánar muninn í fimm stig en staðan í hálfleik var 31-39.  Snæfell/Skallagrímsmenn léku án Trausta Eiríks sem er meiddur á ökkla og voru þeir áfram skrefinu á undan heimamönnum í þriðja leikhluta og bættu við forystu sína og leiddu 49-67.  Fjórði leikhluti var algjörlega eign gestanna sem sigruðu hann 17-37.  Í stöðunni 65-83 þegar um þrjár mínútur voru eftir skoruðu gestirnir 2-21 og unnu yfirburðasigur 66-104.

 

Stigaskor leikmanna Snæfells/Skallagrím: Kristján Pétur Andrésson 26 stig, Egill Egilsson 24, Ásmundur Þrastarson og Guðni Sumarliðason 10, Sigursteinn Orri Hálfdánarson og Andrés Kristinsson 8, Sigurður Þórarinsson 7, Birgir Þór Sverrisson 5, Hlynur Hreinsson og Daníel Jónsson 3, Davíð Guðmundsson og Birgir Pétursson léku en náðu ekki að skora.

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 521
Gestir í dag: 88
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825804
Samtals gestir: 85932
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:23:19
Flettingar í dag: 521
Gestir í dag: 88
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 101
Samtals flettingar: 825804
Samtals gestir: 85932
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 19:23:19