Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

18.11.2009

Skólaþríþraut FRÍ

Skólaþríþraut FRÍ

Skólaþríþraut FRÍ
Skólaþríþraut FRÍ er í fullum undirbúningi þessa dagana og hefur framkvæmdanefnd þrautarinnar fundað nokkrum sinnum á síðustu mánuðum. Unnið er að fjáröflun fyrir verkefnið, sem er eitt öflugasta útbreiðsluverkefni sambandsins, keppnisfyrirkomulag og framkvæmd eru einnig til endurskoðunar. Upplýsingar verða sendar út til skólanna fljótlega þar sem íþróttakennarar fá lykilorð að skráningarvefnum og keppnisreglur.

Forkeppni þrautarinnar hefur farið fram frá 1. feb til 1. maí. Skólunum er heimilt að framkvæma þrautina í þrennu lagi í leikfimitímum eða hagað greinunum þannig að þær rúmist í skólatíma. Allur árangur er síðan skráður í skráningarforrit þrautarinnar og fer sjálfkrafa útreikningur þar fram á stigum keppenda eftir árangri. Stigin eru reiknuð eftir unglingastigatöflum FRÍ.
 
Þeir einstaklingar sem sigra sinn aldursflokk á lokamótinu, bæði í stelpu og strákaflokki er boðið að keppa á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti eða á Gautaborgarleikunum í Svíþjóð sem fara fram um mánaðarmótin Júní/Júlí 2010 í fylgd með traustum fararstjóra Frjálsíþróttasambandsins. Um 100 íslenskir frjálsíþróttaunglingar hafa sótt þessa vinsælu leika árlega í Gautaborg mörg undanfarin ár. Það er því reglulega skemmtileg og vegleg verðlaun í boði. Iceland Express hefur styrkt Skólaþríþrautina í ár eins og í fyrra og er því mögulegt að veita svo vegleg verðlaun.

Skrifað 18.11.2009 kl. 17:16 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 70
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244396
Samtals gestir: 19973
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13

Eldra efni